SNERTIBORÐ
Þægilegt snertiborðið er jafneinfalt í notkun og snjallsími eða spjaldtölva og gerir þeim sem sitja í framsætinu kleift að nota miðlægan 10,3 tommu skjáinn með algengum snertiskipunum.
LEXUS PREMIUM-LEIÐSÖGUKERFI
Hægt er að uppfæra nýjustu kortin með þrívíddarmyndefni og fjölmörgum kortavalkostum eins og leit að kennileitum, með aðstoð „Over The Air“-tækni. Til að gera akstursupplifunina enn meira spennandi er margs konar nettengd þjónusta í boði, svo sem umferðarupplýsingar, leit að bílastæði, veðurspá, Google-leit eða Google Street View.