Lexus á Íslandi
 

HÖNNUN

Djörf. Öðruvísi. Stefnumótandi. Þú þekkir hönnunina okkar samstundis, því að hún hreyfir ávallt við þér og kveikir nýjar hugmyndir sem færa út öll mörk.

SPORTSNEKKJA

Akio Toyoda er ökumeistari sem lætur sér ekki nægja að aka bílum. Hann er stöðugt í könnunarleiðangri, með öll farartæki í sigtinu. Snekkjur eru engin undantekning. Hann hefur lengi sótt innblástur í kraft og mýkt vönduðustu gerðanna.

Hann var þess fullviss að glæsilega hönnuð og kraftmikil snekkja myndi verða spennandi lúxusviðbót við Lexus-lífsstílinn. Við gerðum þetta að veruleika, með Lexus-sportsnekkjunni. Allir um borð.

SLIDE

Við kynnum SLIDE-svifbrettið: nýja leið til að ferðast um. Meistarahönnuðir okkar tóku hjólabrettið og endurhönnuðu það á róttækan hátt. Við gerð SLIDE var helsta tækni endurhönnuð og tækninýjungar kynntar til sögunnar.

Koma þurfti fyrir öflugum „maglev“-rafsegulbúnaði í stílhreinu og straumlínulöguðu bretti. Það þýddi að finna þurfti rétta samsetningu ofurleiðara, segla og fljótandi köfnunarefnis. Í hverju skrefi útvíkkaði teymið möguleika tækninnar.