Lexus á Íslandi
ÓTRÚLEG UPPLIFUN

F-GERÐIR

„F-hugmyndafræðin“ okkar sameinar kappaksturstækni, nákvæma tæknihönnun og, það sem er mikilvægast af öllu, ástríðu fyrir tærustu og áhrifamestu akstursupplifun sem hægt er að hugsa sér. Kynntu þér aflið, afköstin og ánægjuna sem fylgir F-gerðinni af eigin raun.

HANNAÐUR MEÐ ÖKUMANNINN Í HUGA

UPPGÖTVAÐU TÆRA AKSTURSÁNÆGJU

Lexus F-bíllinn er hannaður frá grunni til að efla færni ökumannsins. Við stýrið á öflugum Lexus F-bílnum upplifirðu tæra akstursánægju og óviðjafnanlegt sjálfstraust.

ÓLÝSANLEGUR AKSTUR

VEKUR ATHYGLI

Sumir hafa lýst nýjum RC F sem öflugasta fjögurra sæta bíl sem framleiddur hefur verið. Aðrir einblína á spennuna sem honum fylgir og ganga jafnvel svo langt að tala um fordæmalaust tækniundur þar sem afköstin eru í fyrirrúmi.

RC F Í SMÁATRIÐUM


  • Öflug V8-vélin skilar 477 DIN hö. og 520 Nm togi
  • Hröð 8 þrepa SPDS-sjálfskipting skiptir niður á 0,2 sekúndum
  • Stífur undirvagn og mismunadrif með átaksstýringu skila öruggri stjórn á miklum hraða og framúrskarandi lipurð í beygjum
  • Mælaborð í anda kappakstursbíla með þyngdarkraftsmæli og skeiðklukku
  • 0–100 km/klst.: 4,5 sek.
  • Hámarkshraði: 270 km/klst.