Lexus á Íslandi
EXPERIENCE AMAZING

F SPORT

Tilteknar gerðir Lexus eru fáanlegar í F SPORT-útfærslu og sækja innblástur í F-gerðina okkar, RC F. F SPORT-bílar hafa sportlegra yfirbragð og bæta þannig enn frekar við útlit Lexus-bílanna, sem þó var stórbrotið fyrir. Þú upplifir áður óþekkta akstursánægju og spennu með öllum skilningarvitum.

SPORTLEGIR BÍLAR

F-HUGMYNDAFRÆÐIN

„F“-hugmyndafræði Lexus er leiðarstef í öllum F SPORT-bílum. Þú upplifir tilfinningaþrunginn og endurnærandi akstur sem á engan sinn líka, þökk sé kröftugri hönnun ytra byrðis, sportlegu ökumannsrými og hárnákvæmum aksturseiginleikum.

YTRA ÚTLIT F SPORT


Útlit F Sport er einstakt og hannað til að vekja athygli og aðdáun.

Stór kæligöng fyrir hemla og straumlínulagaðir uggar neðan á vindskeið að framan undirstrika öfluga og ágenga stöðuna um leið og þau auka niðurþrýsting. Látlaus F SPORT-merki vísa svo til upprunans á Fuji-kappakstursbrautinni. Þú getur kynnt þér fleiri einstaka eiginleika ytra byrðisins hér fyrir neðan.

FÍNSTILLTIR EIGINLEIKAR

ENDURBÆTTAR FELGUR OG FJÖÐRUN

Í sönnum sportstíl er hver F SPORT-útfærsla með einstakri álfelguhönnun og lágum hjólbörðum til að tryggja framúrskarandi grip í beygjum. Fjöðrun að framan og aftan er hárnákvæmt stillt til að skila enn betri aksturseiginleikum fyrir ökumenn.
EINSTÖK SMÁATRIÐI

SÉRHANNAÐUR STUÐARI OG GRILL

Einkennandi snældulaga grillið og framstuðarinn á F SPORT-bílnum fanga athyglina og gefa honum djarfan og ákveðinn svip hvar sem ekið er. Á neðri hlutanum að framan er innbyggt vindskeið.

INNRA RÝMI F SPORT


Á meðal atriða í innanrými F SPORT-gerða sem sótt eru til kappakstursbíla eru sæti með sérstökum stuðningi, vélunnin álfótstig og F SPORT-stýri. Um leið og þú sest inn í sérhannað stjórnrýmið sérðu hvernig hvert einasta smáatriði er hannað til að tengja þig við bílinn og sportlega eiginleika hans.

VANDAÐ ÚTLIT OG ÁFERÐ

EINSTAKLEGA VÖNDUÐ SÆTAHÖNNUN

F SPORT-sætahönnunin veitir stuðning í beygjum frá mjöðmum upp að herðum og er nú með ítarlegra hönnunarsniði sem fellur enn betur að líkamanum. Svo er það punkturinn yfir i-ið – á sætunum er ákaflega fallegur útsaumur sem er handunninn af Takumi-meisturunum okkar.
MEIRI TENGING

SKJÁR Í SÖNNUM KAPPAKSTURSANDA

Rennileg hönnun mælaborðsins í F SPORT miðlar öllum lykilgögnum um aksturinn. Þannig geturðu gengið að öllum upplýsingum vísum þegar þess er þörf. Mælaborðið er tengt við akstursstillingarvalið og uppsetning þess ræðst af því hvaða akstursstilling er valin.


Athugið: Í boði með völdum gerðum Lexus.

AFGERANDI GÆÐI

MÓTORSPORTSTÝRING OG -FÓTSTIG

Haganlega hannað sportstýrið er með F-SPORT-merki og klætt götuðu leðri sem kallast á við gírstöngina. Undir fótum þér finnurðu hvernig vélunnu álfótstigin endurspegla kappakstursmiðaða nálgunina í hönnun RC F-gerðarinnar og veita afburðagrip og enn næmari aksturstilfinningu en áður.


Athugið: Í boði með völdum gerðum Lexus.

GERÐIR Í BOÐI SEM F SPORT