Lexus á Íslandi
ÖRUGGUR AKSTUR

ÁÐUR ÓÞEKKT ÖRYGGI

Við vinnum að stöðugri þróun á öryggiskerfum okkar til að tryggja þér betri og öruggari akstur í gegnum hugvitssamlega vernd, fyrirbyggjandi öryggi og aðstoðareiginleika. Kynntu þér hvernig við hugsum um þig, farþega þína, gangandi vegfarendur og aðra ökumenn.

FRAMÚRSKARANDI TÆKNI

NJÓTTU ÖRYGGIS

Fátt skiptir meira máli hjá Lexus en upplifun þín af öryggisbúnaði okkar. Lexus Safety System + og akstursaðstoð auka öryggi þitt og þægindi með því að stuðla að auknu innsæi í akstri. Auknu öryggi fylgir akstursánægja.
HUGARRÓ

LEXUS SAFETY SYSTEM +

Löngun til að koma í veg fyrir möguleg slys með því að auka meðvitund ökumanna leiddi af sér búnað Lexus Safety System +. Upplifðu öryggið sem fylgir árekstrarviðvörunarkerfinu okkar, sem auðveldar þér að greina og sneiða hjá ökutækjum sem nálgast og gangandi vegfarendum.

HJÁLPARHÖND

AKSTURSAÐSTOÐ

Öryggisbúnaður akstursaðstoðarinnar gæðir allan akstur hugarró með því að auka færni ökumannsins í gegnum framúrskarandi tækni. Hagnýtur en um leið hentugur blindsvæðisskynjarinn og sjálfvirkt háljósakerfi tryggja að þú hafir yfirsýn yfir næsta nágrenni bílsins til að auka ekki aðeins vernd fyrir ökumann og farþega heldur einnig aðra vegfarendur.