Lexus á Íslandi
PERSÓNULEGUR AKSTUR

TENGDAR ÞJÓNUSTUR OG LEXUS LINK + APPIÐ

Upplifðu látlausa en um leið framsækna tengimöguleika sem innblásnir eru af innilegri gestrisni Omotenashi. Kynntu þér búnaðinn á bak við tengda þjónustu Lexus Link +, app sem er hannað til að skapa ríkari tengsl milli ökumanns og bíls.

HUGVITSSAMLEG TÆKNI

FÁ FRÉTTIR

Í tengdri þjónustu Lexus Link sameinast sérsnið og notagildi sem gerir þér kleift að upplifa lúxus bæði í og utan bílsins. Finndu öryggið sem fylgir því að fjarstýra hleðlsu, hituneða loftkælingu í appinu. Þú getur tengst við bílinn hvaðan sem er með Lexus Link + appinu og auðveldað aksturinn með samfelldri leiðsögn, aðstoð og afþreyingu.
TRYGGIR FULLA STJÓRN

LEXUS LINK+ APPIÐ

Með nýja Lexus Link+ appinu færðu úrval tengdra þjónusta fyrir Lexus bílinn sem er hönnuð til að gera upplifun þína enn hnökralausari. Þú getur átt samskipti við bílinn hvert sem leið liggur til þess að skipuleggja ferðir að heiman, fínstilla aksturinn og stýra hitanum í bílnum með fjarstýringu og margt fleira, allt í gegnum snjallsímann. Lexus Link+ appið er hannað fyrir framtíðina og markar þáttaskil í tengimöguleikum.
NÝR HEIMUR

NÝSTÁRLEG MARGMIÐLUN

Kynntu þér fjölbreytta eiginleika með snertiskjánum í bílnum. Notaðu leiðsögn í skýinu til að uppfæra kort og umferðarfréttir reglulega, fá viðvaranir um hraðamyndavélar og sjá bensínstöðvar í nágrenninu. Einnig getur þú tengt snjallsímann við Apple CarPlay eða Android Auto til að hlusta á tónlist eða hlaðvörp á meðan þú ekur.