SNERTIBORÐ
LS-bíllinn er með 12,3 tommu skjá sem hægt er að stjórna með snertiborði eða raddskipunum. Viðmót snertiborðsins hefur verið hannað með sömu handhægu eiginleikum og gagnvirkni og snjallsímar bjóða upp á.
LEXUS PREMIUM-LEIÐSÖGUKERFI
Hægt er að uppfæra nýjustu kortin með þrívíddarmyndefni og fjölmörgum kortavalkostum eins og leit að kennileitum, með aðstoð „Over The Air“-tækni. Til að gera akstursupplifunina enn meira spennandi er margs konar nettengd þjónusta í boði, svo sem umferðarupplýsingar, leit að bílastæði, veðurspá, Google-leit eða Google Street View.