Snertiborð
Þú getur stjórnað aðalskjá UX 300e með snertiborðinu á miðstokknum eða með raddskipunum. Viðmót snertiborðsins var hannað út frá hönnun snjallsíma með kunnuglegum aðgerðum á borð við að fletta, klípa og pikka.
LEXUS PREMIUM-LEIÐSÖGUKERFI
Hægt er að uppfæra nýjustu kortin með þrívíddarmyndefni og fjölmörgum kortavalkostum eins og leit að kennileitum, með aðstoð „Over The Air“-tækni. Til að gera akstursupplifunina enn meira spennandi er margs konar nettengd þjónusta í boði, svo sem umferðarupplýsingar, leit að bílastæði, veðurspá, Google-leit eða Google Street View.