Lexus á Íslandi
Með sinni rafmögnuðu „snældulaga yfirbyggingu“ og brautryðjandi tækni er rafknúni RZ 450e nýr frá toppi til táar. Þar sem þú situr á bak við stýri sem er smíðað af Takumi-meistara er tilfinningin mjög persónuleg, eins og bíllinn hafi verið fínstilltur að þér. Upplifðu hvernig mikill stífleiki, lágur þyngdarpunktur og brautryðjandi DIRECT4-grip gefur þessum lúxusjeppa einstaka hröðun og framúrskarandi aksturseiginleika. Með allt að 440 km drægni þar sem hægt er að hlaða bílinn í 80% hleðslu á um 30 mínútum, á sama tíma og þú nýtur góðs af óviðjafnalegri rafhlöðuendingu og skilvirkni.
  • AKSTURINN SKIPTIR ÖLLU MÁLI

    Upplifðu eiginleika nýja RZ 450e sem sameina nýsköpun og öryggi fyrir þig, farþega þína og aðra sem deila veginum með þér.                                                                  

  • VERTU ÖÐRUVÍSI 

    Kynntu þér hvernig hönnun hins nýja Lexus RZ 450e var innblásin af blettatígri.                                                                                                                                                                                                 

  • HEIMSFRUMSÝNING Á RZ 450e

    Uppgötvaðu háþróaða nýja tækni eins og væntanlega leiðslutengda stýristækni (fáanleg 2025) og e-Axle-samstæður með DIRECT4-akstursstýringu.                                      

Útfærslur

Veldu útfærslu

3 Valmöguleikar

  • RZ - Comfort - 5 dyra

    RZ Comfort

    5 dyra

    Frá

    13.760.000 kr.

    Sjálfskipting | 4X4
    • Drægni
      439 km
    • Eyðsla á rafmagni
      169 Wh/km
    • Hröðun 0-100 km/klst.
      5.3 sek
    • Hámarks afköst (DIN hö)
      313
  • RZ - Exe - 5 dyra

    RZ Exe

    5 dyra

    Frá

    14.990.000 kr.

    Sjálfskipting | 4X4
    • Drægni
      406 km
    • Eyðsla á rafmagni
      182 Wh/km
    • Hröðun 0-100 km/klst.
      5.3 sek
    • Hámarks afköst (DIN hö)
      313
  • RZ - Luxury - 5 dyra

    RZ Luxury

    5 dyra

    Frá

    16.490.000 kr.

    Sjálfskipting | 4X4
    • Drægni
      404 km
    • Eyðsla á rafmagni
      183 Wh/km
    • Hröðun 0-100 km/klst.
      5.3 sek
    • Hámarks afköst (DIN hö)
      313

AFKÖST

  • KYNNTU ÞÉR RZ 450e RAFBÍLINN

    RZ 450e er fyrsti Lexus-rafbíllinn (BEV) sem er hannaður frá grunni. Gæði og eiginleikar nýja byggingarlagsins eru grunnurinn að því að skila hinum einstaka Lexus-akstri. Nýja e-TNGA-byggingarlagið er ótrúlega sterkt og rafhlöðueiningin er innbyggð í undirvagninn undir farþegarýminu.

    Þetta hjálpar einnig til við að lækka þyngdarpunkt bílsins, sem aftur tryggir betra jafnvægi, stjórn og svörun. Notuð eru sérstyrkt efni og málmar með háþróuðum byggingarferlum til að tryggja einstakan styrk en halda þyngdinni niðri.

    Í þessum bíl var ekki aðeins skipt út hefðbundinni vél fyrir rafhlöðu heldur nýtir hann alla spennandi möguleikana sem felast í nýrri tækni til að auka afköst og akstursánægju. RZ skilar engum útblæstri og mun þannig aðstoða okkur á vegferð okkar að kolefnishlutleysi og sjálfbæru samfélagi.

  • RAFKNÚIN E-AXLE SAMSTÆÐA

    Lexus e-Axle er nett samstæða á milli drifhjólanna sem samanstendur af mótor, gírum og stjórntölvu. Á RZ 450e eru þessar samstæður notaðar að framan og aftan og þær vinna samhliða DIRECT4-aldrifskerfinu að því að stilla stöðu, spyrnu og orkudreifingu bílsins. E-Axle-samstæðurnar eru hljóðlátar, skilvirkar og skila góðu afli. Fremri mótorinn framleiðir 150 kW og sá aftari 80 kW, sem gefur heildarafl upp á 230 kW. Nett hönnun þeirra spilar einnig þátt í útfærslu bílsins og hjálpar til við að tryggja meira pláss í farþega- og farangursrýminu.

  • DIRECT4-AKSTURSSTÝRING

    RZ 450e er búinn nýju DIRECT4-akstursstýringunni sem vinnur með e-Axle samstæðum tveimur. DIRECT4, sérhönnuð Lexus-tækni, er snjallt kerfi sem jafnar stöðugt spyrnu við fram- og afturöxul og dreifir drifkrafti sjálfvirkt og hnökralaust. Afraksturinn er áhyggjulaus akstur og meiri stöðugleiki á einfaldan hátt sem styrkir tengslin milli ökumanns og vélar. Hægt er að stilla snúningsvægið að framan/aftan frá núlli í 100 eða 100 í núll á millisekúndum – hraðar en nokkurt vélrænt kerfi. Með bættum samskiptum milli vegar og stýris bætir DIRECT4 einnig viðbragð stýrisins.

Valfrjálsa One Motion Grip leiðslutengda stýristæknin er önnur tækninýjung frá Lexus í nýja RZ 450e sem er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

*Hönnun One Motion Grip er ekki endanleg. Verður í boði frá og með 2025.

RZ 450e notar Li-ion rafhlöðu í stafla sem samanstendur af 96 sellum og skilar heildarafköstum upp á 71,4 kWh. Rafhlaðan er undir farþegarýminu og er innbyggð í byggingarlagið. Staðsetning hennar stuðlar einnig að lágum þyngdarpunkti bílsins. Bíllinn skilaði 440 km drægi í WLTP-prófun í blönduðum akstri og hægt er að hlaða rafhlöðuna með hraðhleðslu án þess að skerða öryggi eða endingartíma hennar. 150 kW afl gefur 80% hleðslu á um 30 mínútum. Leiðandi sparneytni RZ í flokki sambærilegra bíla er ekki aðeins vegna framúrskarandi rafhlöðugæða því framúrskarandi loftviðnám og rafmótorar spila einnig sitt hlutverk. Markmið okkar við þróun rafhlöðu RZ-rafbílsins er að hún muni halda að minnsta kosti 90% af afkastagetu sinni eftir 10 ára notkun. Þessi framúrskarandi ending er studd af 1 milljón km framlengdri viðhaldsáætlun okkar fyrir rafhlöður. RZ 450e er einnig búinn skilvirku hitakerfi sem hámarkar afkastagetu og drægi rafhlaðna, jafnvel í frosti.

ÖRYGGI

  • ÞRIÐJA KYNSLÓÐ LEXUS SAFETY SYSTEM+

    RZ 450e er búinn háþróuðum akstursöryggis- og akstursaðstoðarkerfum 3. kynslóðar Lexus Safety System+, með uppfærslum og endurbótum sem fela í sér aukna greiningu á slysahættu. Aðrar tækninýjungar sem kynntar eru í RZ 450e eru m.a. fyrirbyggjandi akstursaðstoð með stýrisaðstoð og nýr ökumannsskynjari sem greinir þreytu eða einbeitingarleysi hjá ökumönnum. Að auki notar fyrirbyggjandi akstursaðstoð myndavélina að framan til að ákvarða beygjuhornið og aðlagar stýrisbúnaðinn þegar nær kemur beygjunni.

  • BÆTT ÁREKSTRARVIÐVÖRUNARKERFI

    Árekstrarviðvörunarkerfi Lexus getur nú komið í veg fyrir enn fleiri mögulega árekstra, til dæmis við beygjur til vinstri eða hægri og við framúrakstur. Kerfið getur einnig greint árekstrarhættu í umferðinni á móti eða frá gangandi vegfarendum þegar bíllinn beygir við gatnamót. Neyðarstýrisaðstoð hjálpar svo enn frekar til við að forðast árekstra.

  • ÖFLUGUR RATSJÁRHRAÐASTILLIR

    Kerfið notar radarmæli og myndavél til að greina bílinn fyrir framan og halda hæfilegri fjarlægð. Ef ökutækið fyrir framan stöðvast stoppar RZ 450e líka. Þegar ökutækið fer aftur af stað ferð þú líka af stað. Búnaðurinn greinir í snatri alla umferð beint fyrir framan bílinn og vinnur með akreinastýringunni til að velja æskilegustu stefnuna í beygjum. Ratsjárhraðastillir kemur einnig í veg fyrir að þú akir upp að hliðinni á hægara ökutæki á ytri akrein.

Þegar gangandi vegfarandi, reiðhjól, mótorhjól eða bíll fyrir framan er mjög nálægt bílnum eða aksturslínunni mun neyðarstýrisaðstoðin í nýja RZ 450e aðstoða við stýringuna til að auka stöðugleika bílsins og leiðrétta stefnuna ef hann leitar út úr akreininni. Í samanburði við venjulega neyðarstýrisaðstoð, sem ökumaðurinn þarf að virkja, er neyðarstýrisaðstoð með virkum stuðningi virkjuð hnökralaust og sjálfvirkt hvenær sem þess er þörf.

Samhliða Lexus Safety System+ er nýr RZ 450e búinn viðbótaröryggispakka sem staðalbúnað. Pakkinn felur í sér akgreinaskiptihjálp (LCA), sem, þegar ökumaður hefur virkjað hana, stýrir sjálfkrafa við akstur á þjóðvegum ásamt umferðarskynjara sem notar ratsjá til að vara ökumann við umferð sem nálgast frá hlið.

AFGERANDI HÖNNUN

  • „HNÖKRALAUS RAFDRIFIN HREYFING“ / STÍLHREIN LED-AÐALLJÓS

    Framhlutinn, sem sækir innblástur í hönnunarhugmyndina „hnökralaus rafdrifin hreyfing“ gefur skýrt til greina að RZ 450e er rafbíll. Þar sem engin hefðbundin vél er til staðar hefur vélarhlífin verið lækkuð og loftinntökin minnkuð. Djörf og einkennandi snældulaga hönnun Lexus er birt í þrívídd á framhluta bílsins á nýju og einfaldara formi sem fangar tækniþróun, notagildi og afköst bílsins. Aðalljósin eru sameinuð snældulaga yfirbyggingunni. Stílhrein og örþunn hönnun ljósanna leggur áherslu á L-lögun Lexus á dagljósabúnaði bílsins á meðan aðalljósin og stefnuljósin eru minna áberandi. 

  • ÖFLUGAR ÚTLÍNUR, BREIÐ STAÐA

                                                                                             Rennileg hliðarlögun bílsins nær hámarki að aftan og skapar sterklegar útlínur, en skörp hönnun framhlutans gefur tilfinningu fyrir krafti og hreyfingu. Afturhluti bílsins staðfestir SUV-eiginleika hans, þægilegt rými og kraftmikla aksturseiginleika. Hjólhafið er 2.850 mm sem eykur enn á áhrifin sem felast í lágri þyngdarmiðju og framúrskarandi stöðugleika. Felgurnar – sem eru almennt 18” eða 20” fyrir dýrari útfærslur – eru staðsettar við hvert horn bílsins.

  • HÁTÆKNIAFTURLJÓS, KENNIMERKI LEXUS AÐ AFTAN

    Framsækið yfirbragð RZ 450e er undirstrikað með fáguðu og hátæknilegu útliti afturhlutans. Klofna þakvindskeiðin að aftan færir hönnunina aftar og eykur stöðugleika bílsins. Langi LED-ljósaborðinn sem er jafn breiður og bíllinn er aðalsmerki Lexus-hönnunar. Hér er honum gefið skarpt en lágstemmt útlit sem veitir tilfinningu fyrir einfaldleika og nákvæmni sem undirstrikað er með einkennandi nýja Lexus-merkinu.

Ökumannsrými RZ 450e ber merki áræðinnar þróunar á Tazuna-hugmyndafræðinni okkar þar sem staða ökumannsins við stýrið er nákvæmlega tengd við uppröðun mæla, stjórntækja og snertiskjás til að skapa rými þar sem aðeins þarf lágmarkshreyfingu handa og augna til að stjórna bílnum. Innblásturinn er fenginn frá litlum hreyfiskipunum sem reiðmenn beita þegar þeir taka í taumana („Tazuna“) á hestum til að stjórna þeim.

Panorama glerþakið, sem hægt er að velja sem aukabúnað, eykur bæði rýmið og birtuna í farþegarýminu. Glerið er með húðun sem endurspeglar innrauða geislun og dregur úr hita á sólríkum dögum, á sama tíma og hún hjálpar til við að halda hita inni í farþegarýminu í köldu veðri. Með því að sleppa skyggninu sparast þyngd sem bætir stjórn á bílnum og býður einnig upp á breiðasta glerþakið í Lexus-bílum.

NÝJASTA TÆKNI

  • SÉRLEGA STÓR 14” SNERTISKJÁR / 10” SJÓNLÍNUSKJÁR

    14” háskerpusnertiskjárinn er einn sá stærsti á markaðnum og fullkomlega staðsettur til að ökumaður geti notað hann í akstri og nálgast upplýsingar, leiðsögn, hita- og loftstýringu með auðveldum hætti. Að auki birtast upplýsingar um bílinn í lit beint á framrúðunni á stórum 10”sjónlínuskjá sem gerir þér kleift að skoða leiðsögn, öryggisbúnað, upplýsingar um bílinn og hljóðstillingar án þess að taka augun af veginum. Notkun skjásins er snurðulaus í gegnum snertirofa á stýrinu.

  • PREMIUM-ÁSKRIFT AÐ LEXUS LINK-TENGINGU

    Sem eigandi RZ 450e nýturðu allra kosta Lexus Link Standard Connectivity*, gjaldfrjálst út endingartíma bílsins. Premium-pakki Lexus Link-tengingar er einnig gjaldfrjáls fyrstu fjögur ár eignarhaldsins og eftir það er hann í áskrift. Hann felur í sér brautryðjandi eiginleika á borð við:

    • Leiðsögukerfi í skýinu og raddaðstoð
    • Vega- og umferðarupplýsingar í rauntíma
    • Upplýsingar um laus almennings- og einkastæði
    • Fjarstýrð hita- og loftgæðastýring: allar RZ útfærslur bjóða upp á fjarstýrða hitun í stýri, sætum og stillingu á hitastigi í innanrýminu.

    *Í boði síðla árs 2023

  • 13 HÁTALARA MARK LEVINSON®-HLJÓMKERFI

    Nýja 13 hátalara Mark Levinson® Premium Surround-hljómkerfi RZ 450e er sérsniðið að hljómburði farþegarýmisins. Það samanstendur af 224 mm bassahátalara og 1.800 vatta aflmögnun og skilar 12 rása magnarahljómi til að skapa stafræna heimabíóupplifun með Clari-Fi™ sem endurskapar hljóð sem tapast við stafræna MP3-samþjöppun.

Með Android Auto® eða þráðlausu Apple CarPlay® gerir nýi RZ 450e þér kleift að birta og fá aðgang að mörgum forritum snjallsímans á 14" snertiskjánum. Hægt er að fá þráðlausan hleðslubakka sem nú er með 50% hraðari hleðslu. Fimm USB-tengi í farþegarýminu, þrjú framan á og tvö aftan á miðstokknum, auka þægindi allra um borð.

RZ 450e er búinn e-Latch tækninni okkar, þægilegu rafknúnu kerfi til að opna hurðir með einni snertingu. Kerfið er tengt við blindsvæðisskynjara bílsins og veitir þannig aðstoð fyrir örugga útgöngu, en hættir við opnun hurða ef ökutæki eða hjólreiðamenn sjást nálgast aftan frá. Gert er ráð fyrir að þessi nýjung muni aðstoða við að koma í veg fyrir 95% slysa þegar dyr eru opnaðar.
KYNNTU ÞÉR LEXUS

VIÐ LOFUM ÓTRÚLEGRI UPPLIFUN

Ótrúleg upplifun í Lexus-reynsluakstri. Veldu þér bíl og tímalengd.

AÐRAR GERÐIR

LBX
Hybrid
LBX
Frá 6.890.000 kr.
UX
Hybrid
UX Comfort
Frá 9.670.000 kr.
RZ
RZ Comfort
Frá 13.760.000 kr.
ES
Hybrid
ES Comfort
Frá 10.490.000 kr.
LS
Hybrid
LS EXE Sedan 4 dyra (LWB)
Frá 28.360.000 kr.
LC
Hybrid
LC Sport + Coupe 2 dyra
Frá 26.450.000 kr.
LM
Hybrid
LM Exe
Frá 24.990.000 kr.

POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/model-filter-results/is/is